Fara beint í efnið

1. september 2023

Opnað fyrir umsóknir A-flokks úr makríl potti

Skip í A-flokki geta sótt um viðbótarheimild í makríl til 10. september.

viti

Umsóknir um úthlutun skal senda á fiskistofa@fiskistofa.is þar sem fram kemur fyrir hvaða skip verið er að óska eftir úthlutun á.

Úthlutun þessi byggir á ákvæðum reglugerðar um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl. Samkvæmt reglugerðinni skal Fiskistofa skipta því magni sem ekki hefur verið úthlutað til B-flokks skipa, jafnt til þeirra skipa í A-flokki sem óska eftir úthlutun. Við birtingu þessarar tilkynningar eru 3.729 tonn í pottinum.

Verð aflaheimildanna er jafn veiðigjaldi makríls hverju sinni eða 3,48 kr/kg samkvæmt auglýsingu um veiðigjald 2023.