Fara beint í efnið

10. júlí 2023

Opnað fyrir kaup á makríl úr 4000 tonna pottinum

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir um viðbótarheimildir í makríl skv. reglugerð nr. 725/2020 um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl.

net hendur

Heimilt er að úthluta allt að 50 tonnum á hvert skip í einu og er gjald fyrir viðbótarúthlutun á árinu 2023 3,48 kr/kg.

Úthlutun viðbótarheimilda fer fram á miðvikudegi í vikunni eftir að umsókn er send inn. Síðasti dagur sem hægt er að sækja um í hverri viku er föstudagur. Úthlutað verður vikulega til 15. september eða þar til potturinn klárast.

Sótt er um viðbótarúthlutun í makríl á sérstöku eyðublaði og skal umsókn send á fiskistofa@fiskistofa.is.

Skilyrði úthlutunar:

  • Skip sé í B-flokki makrílveiða

  • Skip með meira en 30 tonna aflamarksúthlutun skulu hafa veitt 75% af úthlutuðu aflamarki sínu.

  • Skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni.

  • Að greitt hafi verið fyrir viðbótarúthlutun.

Ef sótt er um viðbótarúthlutun í annað sinn er ekki heimilt að úthluta að nýju á skip ef meira en 30 tonn af viðbótarúthlutun standa eftir.

Sjá nánar reglugerð nr. 725/2020 um ráðstöfun 4000 tonna viðbótaraflaheimilda í makríl.