Fara beint í efnið

7. maí 2026

Opið fyrir umsóknir í Horizon Europe netöryggisstyrki

Um er að ræða þrjú köll sem öll hafa umsóknafrest þann 15. september 2026.

Approaches and tools for security in software and hardware development and assessment

HORIZON-CL3-2026-02-CS-ECCC-01

Styrknum er ætlað að að styðja þróun nýrra verkfæra, aðferða og ferla sem efla öryggi hugbúnaðar og vélbúnaðar yfir allan lífsferil stafrænna kerfa. Vegna aukinnar flækju og hnattvæðingar í hugbúnaðar- og vélbúnaðarbirgðakeðjum er mikilvægt að draga úr hættu á veikleikum, bakdyrum og öðrum öryggisógnum sem kunna að leynast í stafrænum kerfum.
Verkefnið skiptist í tvo meginflokka:

1. Öruggur vélbúnaður og flögutækni
  • Hönnun öruggra flaga og örgjörva: Þróun öruggra flögu- og örgjörvaarkitektúra sem eru þolin gegn óheimilli íhlutun og geta stutt skammtaörugga dulritun þar sem við á (PQC).

  • Vörn gegn vélbúnaðarárásum: Aðferðir til að greina vélbúnaðar-tróverja (hardware trojans), bakdyr, hliðarrásarárásir og aðrar áþreifanlegar árásir á flögur og vélbúnað.

  • Sjálfgræðandi fastbúnaður (firmware): Þróun fastbúnaðar sem getur greint árásir, einangrað skemmda eða sýkta hluta og endurheimt öruggt ástand án þess að rekstur stöðvist.

  • Gagnsæi í framleiðslu: Lausnir sem bæta rekjanleika og ábyrgð í framleiðslu og samþættingu íhluta, til dæmis með vottunum, öruggum „root-of-trust“ lausnum eða öðrum rekjanleikatækjum.

2. Öryggi í hugbúnaðarbirgðakeðjum
  • Sjálfvirk leit að veikleikum: Þróun verkfæra sem nýta til dæmis gervigreind, rauntímavöktun og sjálfvirka greiningu til að finna og laga veikleika áður en þeir eru misnotaðir.

  • Hönnunaröryggi (Security-by-design): Innleiðing öryggis frá upphafi hugbúnaðarþróunar, meðal annars með betri stjórnun á aðkeyptum kóðaeiningum (dependencies), sjálfvirkri framfylgni öryggisstefna og vörnum gegn nýjum ógnum, þar með talið skammtatölvuógnum þar sem við á.

  • Sannprófun og traust: Aðferðir til að staðfesta uppruna hugbúnaðar, tryggja öruggar uppfærslur og vernda hugbúnað gegn menguðum eða ótraustum íhlutum.

Styrkupphæð: 3-4 milljónir evra per verkefni
Umsóknarfrestur: 15. september 2026
Gjaldgengir umsækjendur: Lögaðilar með skráningu í aðildarríkjum ESB/EES, þ.m.t. lítil og meðalstór fyrirtæki, stór fyrirtæki, opinberar stofnanir, háskólar og rannsóknastofnanir.
Umsóknarhlekkur: EU Funding & Tenders Portal

Enhancing the Security, Privacy and Robustness of AI Models and Systems (SecureAI)

HORIZON-CL3-2026-02-CS-ECCC-02

Styrknum er ætlað að styðja þróun lausna sem auka öryggi, persónuvernd og áreiðanleika gervigreindarlíkana og kerfa. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja viðnámsþrótt AI-kerfa gegn árásum, tryggja örugga vinnslu viðkvæmra gagna og styðja ábyrga notkun gervigreindar í netöryggi, mikilvægum innviðum og ákvarðanatöku.
Áherslan skiptist í þrjá meginstoðir:

  • Vörn gegn tölvuárásum á gervigreindarlíkön:

    Þróun AI-líkana og kerfa sem eru betur varin gegn margvíslegri meðhöndlun og árásum, svo sem gagnasýkingu (data poisoning), bakdyrainnskotum (backdoor attacks) og rangflokkun eða annarri meðhöndlun sem miðar að því að villa um fyrir kerfinu.

  • Greining og viðbrögð:

    Þróun rauntímalausna sem geta greint frávik eða meðhöndlað þjálfunargögn og aðrar árásir á AI-kerfi. Áhersla er lögð á gagnsæi, sjálfvirka sannprófun gagna og samræmi við AI Act / Gervigreindarlög ESB.

  • Persónuvernd og „Private AI“:

    Þróun aðferða sem gera kleift að þjálfa, keyra og nota AI-líkön í öruggu og persónuvernduðu umhverfi, sérstaklega fyrir viðkvæm notkunartilvik hjá stjórnvöldum og fyrirtækjum. Dæmi um tækni eru samfélagsnám (federated learning), örugg samantekt gagna, úrvinnsla dulkóðaðra gagna og aðrar persónuverndarbætandi lausnir.

Styrkupphæð: 3-4 milljónir evra per verkefni
Umsóknarfrestur: 15. september 2026
Gjaldgengir umsækjendur: Lögaðilar með skráningu í aðildarríkjum ESB/EES, þ.m.t. lítil og meðalstór fyrirtæki, stór fyrirtæki, opinberar stofnanir, háskólar og rannsóknastofnanir.
Umsóknarhlekkur: EU Funding & Tenders Portal

Advanced cryptographic schemes and High-Assurance high-speed cryptographic implementations

HORIZON-CL3-2026-02-CS-ECCC-03

Styrknum er ætlað að styðja þróun háþróaðra og skammtaþolinna dulritunarlausna sem styrkja öryggi, persónuvernd og áreiðanleika stafrænna kerfa. Sérstök áhersla er lögð á stafræn veski, rafræn skilríki, örugga auðkenningu og örugg lyklaskipti yfir ótrygg net. Áherslan er á tvo meginflokka:

  • Skammtaöryggi fyrir stafræn veski og rafræn skilríki:

    Hönnun og innleiðing nýrra dulritunaraðferða, stafrænna undirskrifta og háþróaðra samskiptastaðla sem þola árásir skammtatölva. Markmiðið er að tryggja öryggi og persónuvernd í stafrænum veskjum og rafrænum skilríkjum, meðal annars með öruggri auðkenningu aðila, öruggum lyklaskiptum og lausnum fyrir notendaauðkenningu og endurheimt gagna.

  • HACS og sannprófun dulritunarhugbúnaðar:

    Þróun verkfæra, aðferðafræði og samræmds lýsingarmáls til að sannreyna að dulritunarhugbúnaður sé rétt útfærður og öruggur. Markmiðið er að auðvelda sjálfvirkt mat á dulritunarlausnum, bæta samþættingu HACS-verkfæra í hugbúnaðarþróun og veita vélstuddar öryggistryggingar við innleiðingu skammtaþolinna lausna.

Styrkupphæð: 2-3 milljónir evra per verkefni
Umsóknarfrestur: 15. september 2026
Gjaldgengir umsækjendur: Lögaðilar með skráningu í aðildarríkjum ESB/EES, þ.m.t. lítil og meðalstór fyrirtæki, stór fyrirtæki, opinberar stofnanir, háskólar, rannsóknastofnanir og aðilar sem starfa við stafræn auðkenni og rafræn skilríki (eID).
Umsóknarhlekkur: EU Funding & Tenders Portal