Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. mars 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, tveir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Fjórir voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Þetta eru allt karlar á aldrinum 18-52 ára. Tveir þessara ökumanna voru próflausir og þrír lentu í umferðaróhappi þar sem sökin var alfarið þeirra. Enginn slasaðist en það er ekki þessum óábyrgu ökumönnum að þakka.