31. ágúst 2011
31. ágúst 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ölvunarakstur
Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær og nótt en þeir voru stöðvaðir í Háaleitishverfi og miðborginni. Um var að ræða tvo karla, annar er á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri. Þá var tvítugur piltur stöðvaður við akstur í Hafnarfirði í gær en hann hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Sá var jafnframt með fíkniefni í fórum sínum.