Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaaksturseftirlit í desember 2010.

Helgina 10.- 12. desember var lögreglan á Suðurnesjum með sérstakt eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri. Í þessu sérstaka verkefni hafði lögreglan á Suðurnesjum, 4 lögreglumenn og tvær lögreglubifreiðar.

124 ökumenn voru stöðvaðir yfir helgina og var rætt við þá. Ekkert athugavert kom í ljós við skoðun.

Þeir ökumenn sem lögregla ræddi við í þessu sérstaka eftirliti , tóku vel í þessa framkvæmd lögreglu og fannst gott til þess að vita að lögreglan væri með eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri. Yfir helgina voru tveir ökumenn færðir á lögreglustöð, einn grunaður um meintan akstur undir áhrifum áfengis, og annar ökumaður grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Umferðin um helgina gekk að öðru leiti vel og án slysa.