Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaaksturseftirlit á Suðurnesjum.

Helgina 17. til 19. desember 2010 var lögreglan á Suðurnesjum með sérstakt umferðareftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri. Settir voru upp umferðarpóstar og voru 85 ökumenn stöðvaðir og athugað með ástand þeirra. Ekkert athugavert kom í ljós við þá skoðun.

Um helgina voru fjórir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn grunaður um akstur undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna.

Fimm ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á Suðurnesjum. Sá er hraðast ók mældist á 164 km þar sem hámarkshraðinn er 90 km.