17. júlí 2018
17. júlí 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Þrjátíu og átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrjátíu og einn var stöðvaður í Reykjavík, þrír í Kópvogi og Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, fjórtán á laugardag, sextán á sunnudag og fjórir aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrjátíu karlar á aldrinum 17-56 ára og átta konur, 18-51 árs. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.