7. janúar 2015
7. janúar 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-50 ára, en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.