Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Þrjátíu og átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um hvítasunnuhelgina. Tuttugu og sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, sex í Kópavogi, fjórir í Hafnarfirði og tveir í Garðabæ. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, tíu á laugardag, tíu á sunnudag og fjórtán í gær. Þetta var þrjátíu og einn karl á aldrinum 16-68 ára og sjö konur, 20-62 ára. Tíu þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.