Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Þeir voru stöðvaðir í Reykjavík, Mosfellsbæ og Garðabæ. Þetta voru fjórir karlar og ein kona. Einn ökumannanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi, en sá hinn sami var á stolnum bíl.