Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. febrúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Þeir voru stöðvaðir í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ, en þetta voru allt karlar á þrítugsaldri. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, en sá hinn sami var á stolnum bíl.