Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. janúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og sex í Hafnarfirði. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, þrettán á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta voru sautján karlar á aldrinum 17-43 ára og tvær konur, 23 og 24 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.