Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. janúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Fimm voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 18-44 ára og þrjár konur, 19-24 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.