Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. nóvember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Sjö voru teknir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-52 ára og fjórar konur, 29-60 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.