20. nóvember 2012
20. nóvember 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Tuttugu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tíu á laugardag, sjö á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 17-43 ára og sex konur, 17-45 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.