Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. ágúst 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Átján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Tíu voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 21-51 árs og sex konur, 19-41 árs. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.