Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. janúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru sex karlar á aldrinum 22-32 ára og ein kona, 18 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en tveir þeirra voru jafnframt á stolnum bíl.