Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Tvær konur voru teknar fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gærkvöld og nótt. Önnur ók á stöðumæli í miðborginni um kvöldmatarleytið en þar lauk ökuferð hennar. Hin var stöðvuð á Bústaðavegi en hún átti mjög erfitt með að halda bíl sínum á veginum. Eldri konan er um fimmtugt en sú yngri er tæplega þrítug.

Þá voru karl og kona á þrítugsaldri tekin fyrir fíkniefnakstur. Þau voru bæði handtekin í Kópavogi síðdegis.