Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru allt karlar en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Sá yngsti er um tvítugt en sá elsti á sextugsaldri. Þriðji maðurinn er á fertugsaldri en í bíl hans fundust munir sem grunur leikur á að séu þýfi.