Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt en tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru tveir karlar, 40 og 55 ára, og ein kona, 17 ára. Öðrum karlinum var veitt eftirför um langan veg en viðkomandi reyndist einnig eftirlýstur fyrir aðrar sakir.