Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. desember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og fíkniefnaakstur

Tuttugu og níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Garðabæ og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Þetta voru tuttugu og sex karlar á aldrinum 21-65 ára og þrjár konur, 19-24 ára.

Lögreglan var mjög víða við eftirlit í umdæminu með ölvunar-, fíkniefna- og lyfjaakstri og svo verður vitaskuld áfram enda full ástæða til.