Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. september 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvaður reykti í flugvél

Rúmlega fimmtugur karlmaður var staðinn að því að reykja inni á salerni flugvélar Icelandair sem var á leið til landsins. Maðurinn var að koma frá heimalandi sínu, Noregi, og reyndist hann vera verulega ölvaður, þegar lögreglan á Suðurnesjum ræddi við hann. Hann kvaðst í fyrstu ekki hafa reykt í vélinni, en breytti síðan framburði sínum og sagðist sjá eftir athæfi sínu, sem ekki myndi endurtaka sig. Hann var frjáls ferða sinna að svo búnu, en málið er í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum.