Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökuþrjótur handtekinn í Breiðholti

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn eftir þriggja bíla árekstur í Breiðholti síðdegis í gær en hann er grunaður um ölvunarakstur. Tildrög slyssins voru þau að tveir bílar voru kyrrstæðir aftan við strætisvagn sem hafði numið staðar við biðskýli. Bíll mannsins kom þá aðvífandi og lenti aftan á öðrum bílnum sem kastaðist síðan áfram á þann þriðja. Bíll tjónvaldsins skemmdist sýnu mest en hann vildi alls ekki láta kalla til lögreglu og forðaði sér af staðnum með látum. Við það mátti litlu muna að ófrísk kona yrði fyrir bíl hans en konan var ökumaður bílsins sem maðurinn ók á. Nokkur vitni voru að atvikinu og því fékk lögreglan góða lýsingu á kauða sem fannst á öldurhúsi skömmu síðar.