Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. júní 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökumenn til fyrirmyndar í Langatanga í Mosfellsbæ

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit í Langatanga í Mosfellsbæ þriðjudaginn 9. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð í Langatanga en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, við Baugatanga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 18 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Langatanga. Útkoman þá var sömuleiðis góð en enginn ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Þá fóru 25