Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. maí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökumenn til fyrirmyndar í Hlíðarhjalla í Kópavogi

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hlíðarhjalla í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarhjalla í vesturátt, við Skálaheiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem ók of hratt mældist á 63.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Hlíðarhjalla var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.