Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. apríl 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökumenn til fyrirmyndar í Baugakór í Kópavogi

Eftirlit lögreglunnar í Baugakór er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Baugakór var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.