17. maí 2011
17. maí 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ökumenn til fyrirmyndar á Suðurlandsvegi
Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, við Elliðakot. Á einni klukkustund, síðdegis, fór 251 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða. Þeir sem óku of hratt mældust á 104 og 108 en þarna er 90 km hámarkshraði. Hinir ökumennirnir óku langflestir á 80-90 km hraða.