Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. júní 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ökumenn til fyrirmyndar á Skólabraut í Mosfellsbæ

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit á Skólabraut í Mosfellsbæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð á Skólabraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, á móts við Varmárskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 14 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Skólabraut. Útkoman þá var sömuleiðis góð en enginn ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Þá fóru 15 ökutæki þessa akstursleið og því sömuleiðis mjög lítil umferð um götuna.