Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. janúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Óhæfur ökumaður með börn í bílnum

Kona var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för voru börnin hennar, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þeirra þágu og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Mamman var hins vegar handtekin og flutt á lögreglustöð. Því miður er mál sem þetta ekki einsdæmi.