20. september 2011
20. september 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Óhæfur ökumaður með barn í bílnum
Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð.