Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Óhæfur ökumaður með barn í bílnum

Kona á þrítugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Hún var í annarlegu ástandi en í fórum hennar fundust fíkniefni. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð en hún hafði þegar verið svipt ökuleyfi.