Fara beint í efnið

11. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ofsaakstur í Kópavogi

Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöld. Bíll hans mældist á 124 km hraða á móts við Álfabrekku en þarna er 50 km hámarkshraði. Ökumaðurinn, sem hefur áður verið tekinn fyrir hraðakstur, var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.