Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ofsaakstur í Flóa

Lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu ökumann á 162ja km hraða á Suðurlandsvegi austan við Þingborg í Flóa um níuleytið í gærkvöldi. Þar var á ferð franskur ferðamaður á vesturleið. Á þessum vegarkafla er vegurinn bugðóttur og útsýn takmörkuð fram á veginn. Ökumaður var færður á lögreglustöðína á Selfossi þar sem fulltrúi lögreglustjóra gerði ökumanni að greiða 105 þúsund króna sekt og svipti hann ökuleyfi í tvo mánuði.