15. janúar 2008
15. janúar 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ofbeldismenn í áframhaldandi gæsluvarðhaldi
Fimm karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. janúar en þeir réðust að lögreglumönnum við skyldustörf á Laugavegi aðfaranótt föstudags. Þrír þeirra voru handteknir á vettvangi en tveir á heimili sínu í Reykjavík. Fimmmenningarnir, sem eru á aldrinum 19-25 ára, eru allir af erlendu bergi brotnir.