12. ágúst 2009
12. ágúst 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ofbeldis- og frelsissviptingarmál í rannsókn
Lögreglan á Akureyri rannsakar mál þar sem manni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Þrír aðilar eru í haldi lögreglu vegna málsins og hafa þeir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Málið er á frumstigi og mun lögreglan ekki gefa frekari upplýsingar um það að svo stöddu.