Fara beint í efnið

15. desember 2022

Öndunarfærasýkingar. Vika 49 árið 2022

Töluverður fjöldi greinist áfram með COVID-19, inflúensu og RSV hér á landi og fjölgaði milli vikna. Klínískar greiningar öndunarfærasýkinga benda til hærri tíðni en í venjulegu ári.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Innlögnum á sjúkrahús fækkaði heldur. Mikilvægt er að sinna persónubundnum smitvörnum þar sem það dregur úr smiti til annarra og þar með alvarlegum veikindum meðal áhættuhópa. Allir ættu að halda sig til hlés í veikindum, sinna handhreinsun, nota grímu við ákveðnar aðstæður eins og heilbrigðisstofnunum og forðast umgengi við ungbörn og aðra í áhættuhópum ef með einkenni. Í samantekt um viku 49 er farið nánar yfir síðastliðna viku.

Sóttvarnalæknir