Fara beint í efnið

9. desember 2022

Öndunarfærasýkingar. Vika 48 árið 2022

Töluverður fjöldi greinist áfram með COVID-19, inflúensu og RSV hér á landi en greiningum fækkaði þó á milli vikna. Einnig dró úr fjölda þeirra sem þurftu á innlögn að halda vegna þessara sjúkdóma.

Embætti Landlæknis - merki

Mikilvægt er að sinna persónubundnum smitvörnum þar sem það dregur úr smiti til annarra og þar með alvarlegum veikindum meðal áhættuhópa. Allir ættu að halda sig til hlés í veikindum, sinna handhreinsun, nota grímu við ákveðnar aðstæður eins og heilbrigðisstofnunum þ.m.t. biðstofum og forðast umgengi við ungbörn og aðra í áhættuhópum ef með einkenni. Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra síðastliðna viku. 

Sóttvarnalæknir