2. febrúar 2026
2. febrúar 2026
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Þrjátíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu og einn var stöðvaður í Reykjavík, átta í Hafnarfirði, þrír í Garðabæ og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Tíu voru teknir á föstudagskvöld, fimmtán á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og níu karlar á aldrinum 19-67 ára og fimm konur, 40-73 ára. Tíu þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Um helgina voru enn fremur nokkrir ökumenn staðnir að hraðakstri. Þar á meðal 17 ára piltur, sem ók bifreið á 159 km hraða á Suðurlandsvegi við Sandskeið. Viðurlög við brotinu eru svipting ökuréttinda og 230 þúsund kr. sekt. Þess má geta að í bílnum voru fjórir farþegar, ungmenni á sama reki og pilturinn, og voru tveir þeirra ekki í bílbelti.