Fara beint í efnið

10. janúar 2024

Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri lætur af störfum

Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri hefur beðist lausnar frá störfum frá og með 15. janúar 2024.

Ögmundur Knútsson

Fiskistofa þakkar Ögmundi vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi, en hann hefur tekið að sér starf hjá Alþjóðabankanum sem „Senior Fisheries Specialist“ fyrir Vestur Afríku. 

Elín Björg Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs og staðgengill Fiskistofustjóra mun sinna starfi Fiskistofustjóra þar til ráðinn verður nýr aðili í starfið sem verður auglýst á næstu dögum.

Samhliða þessum breytingum mun Sævar Guðmundsson taka við sviðsstjórakeflinu af Elínu.