Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. desember 2025

Öflugt umferðareftirlit lögreglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er víða við umferðareftirlit í umdæminu í desember, en síðustu tvær helgar kannaði hún með ástand tæplega þrjú þúsund ökumanna í sérstöku eftirliti með ölvunar-, fíkniefna- og lyfjaakstri.

Níu þeirra reyndust ölvaðir og/eða undir áhrifum fíkniefna og voru þeir handteknir og fluttir á lögreglustöð. Átta ökumönnum til viðbótar var gert að hætta akstri. Þeir höfðu allir neytt áfengis en voru undir refsimörkum.

Langflestir ökumannanna tóku afskiptunum vel, enda eru þau gerð í þágu almennings í þeim tilgangi að gera umferðina öruggari fyrir alla. Eftirlitinu verður framhaldið um helgina og því geta ökumenn átt von á að verða stöðvaðir við akstur hvar og hvenær sem er.