Fara beint í efnið

29. mars 2023

Oddfellow gáfu 6 milljónir til HSU

Höfðingleg gjöf til líknardeildar HSU

Oddfellow 1

Oddfellow stúkurnar gefa til HSU


HSU fékk nýverið sérlega ánægjulega heimsókn frá Rebekkustúku nr. 9 Þóru og Stúku nr. 17 Hásteini I.O.O.F. Stúkurnar halda um þessar mundir uppá 30 ára afmæli sitt og vildu af því tilefni færa Líknardeild HSU 6 milljónir að gjöf til uppbyggingar deildarinnar.

Það er ómetanlegt að finna þann hlýhug sem svona gjöf fylgir og aldrei hægt að fullþakka.

Færum stúkunum innilegar þakkir fyrir höfðinglega gjöf sem mun nýtast vel og óskum þeim til hamingju með afmælið.

Oddfellow 2
Oddfellow 3