16. júní 2026
16. júní 2026
Nýtt varðveisluhúsnæði tekið í notkun
Mikilvægum áfanga í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns hefur nú verið náð með opnun nýs varðveisluhúsnæðis í Sundaborg í Reykjavík. Húsnæðið rúmar 14 hillukílómetra af skjölum sem komið er fyrir í tvílyftu rafdrifnu hillukerfi sem er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu. Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðneytisstjóri í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti opnaði húsnæðið formlega og flutti ávarp ásamt Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalaverði við stutta athöfn föstudaginn 13. júní. Einnig flutti ávarp við tilefnið Kristján Þorvaldsson sviðsstjóri rekstrar á Þjóðskjalasafni.

Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður klipptu á borðann.
Heildarsafnkostur Þjóðskjalasafns er nú um 60 hillukílómetrar og á næstu tveimur til þremur áratugum er gert ráð fyrir að heildarmagn pappírsskjala í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands muni tvöfaldast og verða nálægt 110-120 hillukílómetrar. Að þeim tíma loknum er áætlað að stjórnsýslan hafi skilað af sér síðustu pappírsgögnum sínum samhliða innleiðingu rafrænna vinnubragða.
Húsnæðið sem nú hefur verið tekið í notkun rúmar því um 12% af heildarsafnkostinum til framtíðar. Rafdrifna hillukerfið er á tveimur hæðum og var hannað inn í rýmið til að hámarka nýtingu þess. Kerfið var flutt inn frá Hollandi af Rými ehf. og er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Óhætt er að segja að nýja aðstaðan í Sundaborg marki tímamót í varðveisluhúsnæði safnsins og slái tóninn í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns til framtíðar.
„Á næstu vikum verður um 750-800 brettum af skjölum komið fyrir í nýja og í lok sumars ætti að vera búið að koma fyrir tæplega 10 hillukílómetrum af frágengnum skjalasöfnum. Það lætur því nærri að nýja húsnæðið verði fullnýtt öðru hvoru megin við komandi áramót og því er brýnt að huga þegar að næstu lausnum í varðveislu Þjóðskjalasafns Íslands,“ segir Kristján Þorvaldsson sviðsstjóri rekstrar á Þjóðskjalasafni.

Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.

Kristján Þorvaldsson flytur ávarp.
Myndir frá uppsetningu sem hófst í byrjun árs og lauk í byrjun júní:



