Fara beint í efnið

20. október 2026

Nýtt umsóknarferli fyrir húsnæðisbætur á Ísland.is

HMS hefur tekið fyrsta skrefið í að færa umsóknarferli húsnæðisbóta frá HMS yfir á Ísland.is. Nú er hægt að sækja um húsnæðisbætur á Ísland.is og í byrjun næsta árs er stefnt að því að allt umsóknarferlið verði komið þangað.

Á meðan verður áfram hægt að fara inn á Mínar síður HMS til að gera breytingar á umsókn eftir að hún hefur verið send inn, nálgast greiðsluyfirlit og stofna greiðsludreifingu. Þegar flutningi umsóknarferlisins lýkur verður núverandi kerfi á Mínum síðum HMS lagt niður.

Hvað breytist?

  • Sótt er um húsnæðisbætur á Ísland.is

  • Nauðsynleg gögn þurfa að liggja fyrir áður en umsókn er send til HMS, svo sem upplýsingar um leigusamning, lögheimilisskráningu og skattframtal

  • Þegar umsókn hefur verið send til HMS er hún tekin til afgreiðslu í kjölfarið

Markmið breytinganna er að gera umsóknarferlið einfaldara, skýrara og notendavænna, og tryggja að umsókn berist til afgreiðslu hjá HMS þegar nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir.

Nú er því bæði hægt að sækja um húsnæðisbætur og skrá leigusamning hjá HMS í sama ferlinu á Ísland.is.