Fara beint í efnið

27. apríl 2026

Nýtt sameiginlegt símanúmer hjá HSN á Dalvík og í Fjallabyggð – 432 4000

Frá og með miðvikudeginum 29. apríl verður tekið upp eitt sameiginlegt símanúmer fyrir heilsugæslur HSN á Dalvík og í Fjallabyggð: 432 4000.

Breytingin er fyrsta skrefið í innleiðingu samræmdrar símsvörunar innan HSN. Markmiðið er að bæta þjónustu og tryggja samræmda upplifun skjólstæðinga, óháð búsetu innan starfssvæðisins.

Hægt verður að hringja í númerið 432 4000 frá 29. apríl til að:

  • Bóka tíma hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi: 
    Opið frá kl. 08.10–15.30 virka daga nema á föstudegi frá kl. 08.10–14.00

  • Óska eftir lyfjaendurnýjun (einnig hægt á Heilsuveru): 
    Opið frá kl. 09.00–10.00

  • Óska eftir samtali við heilbrigðisgagnafræðing: 
    Opið frá kl. 10.00–12.00