Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. júní 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nýtt lón við Gígjökul getur valdið hættu!

Ábending hefur borist til lögreglunnar á Hvolsvelli

í dag 23. júní 2011 vegna hættu við Gígjökul.

Menn sem nýlega voru þarna á ferð tóku eftir að myndast hefur lítið lón við jökulsporðinn. Nú er talsverð umferð þarna og hvetjum við menn sem fara þarna upp að jökli að fara mjög varlega. Þetta á reyndar við um allt Lónstæðið gamla. Þetta er meira og minna ís huldur þunnu malarlagi. Ef menn fara fram á bakka „nýja lónsins“ og falla í vatnið þá er glæra ís neðan við vatnsborðið. Litlar líkur er á því að maður nái að krafla sig upp úr slíku nema vopnaður broddum og ísöxi. Menn eru venjulega ekki vopnaðir slíku. Vatnið er venjulega mjög kalt á svona stöðum. Þetta er því dauðans alvara. Að hafa langan spotta eða línu er það sem helst er til bjargar ef illa fer. Best er þó að koma sér ekki í vandræði.

Lögreglan á Hvolsvelli hvetur því fólk að fara að með öllu með gát.

Einnig ítrekar lögreglan að utavegaakstur er með öllu óheimill.