21. maí 2024
21. maí 2024
Nýr yfirlæknir á Bráðamóttöku HSU Selfossi
Brynja Kristín Einarsdóttir hefur verið ráðin sem nýr yfirlæknir bráðamóttökunnar á Selfossi.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4CJRFMLojDdXg2nzu2U1qQ/0c8f6753bd8a3e573770faca755cc1f4/Brynja_Krist_n_Einarsd_ttir.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Brynja Kristín Einarsdóttir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4CJRFMLojDdXg2nzu2U1qQ/0c8f6753bd8a3e573770faca755cc1f4/Brynja_Krist_n_Einarsd_ttir.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Ráðningin er tímabundin frá 1. maí til 15. september.
Brynja kláraði árið 2019 læknanám við háskólann í Debrecen, Ungverjalandi og starfaði samhliða náminu m.a á bráðamóttöku Selfossi, sjúkrahúsinu Vogi og heilsugæslunni Hveragerði og Þorlákshöfn.
Að námi loknu hóf hún störf á sjúkrahúsinu á Akureyri og vorið 2020 tók við sérnám í bæklunarskurðlækningum á SAK. Tveimur árum síðar færði Brynja sig um set og hóf störf á bæklunarskurðdeild Landspítalans þar til hún byrjaði á bráðamóttöku HSU þann 1. mars s.l.
Við bjóðum Brynju hjartanlega velkomna.