Fara beint í efnið

26. september 2023

Nýr vefur Geislavarna ríkisins

Geislavarnir ríkisins hafa nú flutt vef sinn yfir á Ísland.is. Þarfir notanda voru settar í fyrsta sæti við gerð vefsins og að haft að markmiði að auðveldara sé afla sér upplýsinga.

Geislavarnir ríkisins merki

Ákvörðunin um að flytja vefinn yfir á Ísland.is var tekin meðal annars út frá því sjónarmiði að þannig yrði efni vefsins hluti af miðlægu vefsvæði ríkisstofnana.

Öll þjónusta stofnunarinnar hefur lengi verið rafræn og er þessi breyting liður í því að stuðla að því að hægt sé að sækja alla þjónustu ríkisstofnana á einn stað.

Það er von okkar að nýr vefur sé auðveldari í notkun og efnið sem leitað er að sé aðgengilegra.

Endurskoðun efnis á vefnum er ekki lokið og allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar á netfangið kerfisstjori@gr.is. Allar ábendingar verða nýttar til að gera vefinn enn betri.