Fara beint í efnið

7. apríl 2022

Nýr Talnabrunnur kominn út - 4. tölublað 2022

Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út. Að þessu sinni er fjallað um líðan fullorðinna, einkum hvað varðar andlega heilsu, svefn, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld.

Talnabrunnur mynd með fréttum

Í greininni eru þessir þættir einnig skoðaðir sérstaklega í tengslum við fjárhagserfiðleika sem eru mikilvægur áhrifaþáttur heilbrigðis og vellíðanar.

Höfundar efnis eru Sigrún Daníelsdóttir og Jón Óskar Guðlaugsson

Ritstjóri Talnabrunns er Hildur Björk Sigbjörnsdóttir