14. október 2026
14. október 2026
Nýr fræðslupakki lögreglunnar til forvarna gegn neteinelti
Annar fræðslupakkinn í vitundarvakningu lögreglunnar og samstarfsaðila um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna er kominn út. Hann fjallar um neteinelti og er ætlaður til kennslu á miðstigi og unglingastigi grunnskóla.

Netið er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi ungs fólks. Neteinelti einskorðast ekki við ákveðinn stað eða tíma. Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni 2025 segjast 13% nemenda í 6. bekk hafa orðið fyrir einelti í skólanum tvisvar eða oftar í mánuði undanfarna tvo mánuði. Rannsóknin mælir því ekki neteinelti. Í sama árgangi nota hins vegar 85% nemenda samfélagsmiðla sem getur aukið hættuna á slíkum birtingarmyndum eineltis. Því skiptir miklu máli að börn, ungmenni og fullorðið fólk í kringum þau þekki merkin, ræði málið og viti hvernig hægt er að bregðast við.
Í fræðslupakkanum eru kennsluleiðbeiningar, glærur, og verkefni sem kennarar geta nýtt og lagað að sínum nemendahópi. Þar er meðal annars fjallað um birtingarmyndir neteineltis, mörkin milli eineltis og haturstjáningar, keðju ofbeldis og leiðir til að vinna gegn neteinelti.
Nana Rut Hlynsdóttir, samfélagslögregla hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, kynnir fræðsluna og efni hennar í myndbandi á vefsíðu pakkans.
Fræðslupakkinn um forvarnir gegn neteinelti fylgir í kjölfar pakka um forvarnir gegn deilingu nektarmyndefnis og kynlífskúgunar, sem kom út 6. október sl. og er ætlaður efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Báðir pakkarnir eru aðgengilegir á vefnum Stopp ofbeldi! hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Lögreglan hvetur skóla, foreldra og forsjáraðila og annað fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum til að kynna sér efnið.
Fræðslupakkann má nálgast hér: https://stoppofbeldi.mms.is/fraedsluefni/neteinelti/
Vitundarvakningin er unnin af lögreglunni í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Barna- og fjölskyldustofu, Netvís, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands, Neyðarlínuna, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og Taktu skrefið. Fræðsluefnið er að hluta styrkt af Evrópusambandinu og netöryggisstyrk Eyvarar.